Read More »"/>

Hagvaxtarauki kemur til framkvæmda hjá Reykjavíkurborg

Heim / Fréttir / Hagvaxtarauki kemur til framkvæmda hjá Reykjavíkurborg

Í gildandi kjarasamningi Sálfræðingafélag Íslands við  Reykjavíkurborg  er  tengiákvæði við lífskjarasamninga á almennum vinnumarkaði um greiðslu hagvaxtarauka.

Nú hefur verið staðfest að hagvaxtarauki að upphæð 10.500 kr. komi á taxtalaun  frá 1. apríl og til greiðslu þann 1. maí næstkomandi.

Frá 1. apríl bætist því hagvaxtaraukinn 10.500 kr. við grunnlaun í launatöflu gildandi kjarasamnings Reykjavíkurborgar og Sálfræðingfélags Íslands.

Launatöflur hafa hins vegar ekki verið birtar en von er á þeim á næstunni og má finna hér. Þær verða í kjölfarið einnig birtar á heimasíðu Sálfræðingfélagsins.

Tengdar færslur