Read More »"/>

Tilnefningar til heiðursverðlauna

Heim / Fréttir / Tilnefningar til heiðursverðlauna

Stjórn Sálfræðingafélags Íslands auglýsir eftir tilnefningum til heiðursverðlauna SÍ sem veitt verða í annað sinn á næstkomandi Sálfræðiþingi, 8. apríl nk.
Skorað er á félagsmenn að senda inn tilnefningar um sálfræðinga sem eiga skilið virðingarvott fyrir störf sín, hafa innleitt nýjungar og/eða þróað verkefni í þágu sálfræðinnar, hafa skarað fram úr og verið öðrum fyrirmynd í starfi. Skilyrði er að sálfræðingurinn sé félagsmaður í SÍ.
Í tilnefningu skal koma fram nafn viðkomandi, vinnustaður og góður rökstuðningur fyrir tilnefningunni. Tilnefningu skal senda á sal@sal.is fyrir 15. mars nk..

Tengdar færslur