Read More »"/>

Sálfræðiþing 2024 – ert þú með áhugavert efni á þingið?

Heim / Fréttir / Sálfræðiþing 2024 – ert þú með áhugavert efni á þingið?

Sálfræðiþingið 2024 fer fram dagana 6. til 8. mars 2024.  Kallað er eftir efni á þingið, skilafrestur er til 1. febrúar 2024.

 

Kallað er eftir efni fyrir fræðslu -og námskeiðsdag þingsins.

Dagurinn er helgaður fræðslu, námskeiðum og kynningum.

Skipuleggjendur hafa frjálsar hendur um tímalengd, fyrirkomulag, staðsetningu og þátttökugjöld

Sálfræðingar eru hvattir til að bjóða upp á fræðslufyrirlestra, námskeið, kynningar og málstofur á vinnustöðum sínum eða í húsnæði SÍ / BHM.

 

Kallað er eftir efni til kynningar á ráðstefnudeginum.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 8:30-17:00. Á ráðstefnunni fara fram

þematengdar málstofur og vinnustofur sem og kynning erinda og veggspjalda.

 

Heiðursverðlaun SÍ

Skorað er á félagsmenn að senda inn tilnefningar um sálfræðinga sem eiga skilið virðingarvott fyrir störf sín, hafa innleitt

nýjungar og/eða þróað verkefni í þágu sálfræðinnar, hafa skarað fram úr og verið öðrum fyrirmynd í starfi.

Sálfræðingarnir skulu vera félagsmenn í SÍ. Í tilnefningu

 

Sjá nánar um skilyrði fyrir innsendingu á efni hér.

 

Efni skal senda inn í gegnum heimasíðu þingsins, sjá hér: Sálfræðiþing 2024 – Skráning ágripa (salfraedithing.is)

 

Tengdar færslur