Read More »"/>

Aðalfundur Sálfræðingafélags Íslands – fundarboð

Heim / Viðburður / Aðalfundur Sálfræðingafélags Íslands – fundarboð
Dags.: 6. apríl, 2022
Tími: 16:30 - 19:00
Staðsetning: Borgartúni 6, 4ðu hæð

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 16:30. Fundurinn verður bæði sem staðfundur og á rafrænu formi. Félagsmenn þurfa að skrá sig á fundinn og er fundurinn auglýstur á heimasíðu félagsins.

Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Skýrslur nefnda, ráða, fagdeilda og undirfélaga félagsins.
  3.  Reikningar félagsins, nefnda og sjóða.
  4.  Fjárhagsáætlun og ákvörðun árgjalds.
  5. Laga- og reglubreytingar.
  6.  Kosning / tilkynning um kjör í embætti og stjórn
  7. Kosning í nefndir og stjórnir sjóða.
  8.  Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  9.  Kynning á starfsáætlun næsta árs.
  10. Önnur mál.

Meðfylgjandi er ein lagabreytingartillaga stjórnar (Lagabreytingartillaga SÍ fyrir aðalfund 2022). Kosið verður um þessa tillögu á aðalfundi.

Fjórir stjórnarmenn eru nú að ljúka sínu tveggja ára kjörtímabili, varaformaður félagsins, gjaldkeri og tveir meðstjórnendur.

Gjaldkeri félagsins Álfheiður Guðmundsdóttir býður sig fram til áframhaldandi starfa. Varaformaður félagsins Bóas Valdórsson og meðstjórnendurnir Gunnhildur Gunnarsdóttir og Berglind Stefánsdóttir bjóða sig ekki fram til áframhaldandi starfa.

Kosið er í embættin til tveggja ára í senn.

Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til starfa í stjórn þurfa að skila inn framboði eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund, sjá nánar eftirfarandi varðandi kjör til stjórnar í lögum félagsins.

Úr lögum félagsins:

  • Framboð til stjórnar skulu berast félaginu ekki síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og eru þau kynnt félagsmönnum með tölvupósti og á heimasíðu félagsins.
  • Ef fleiri en einn er í framboði til hvers embættis skal kosning fara fram með rafrænni kosningu meðal allra atkvæðisbærra félagsmanna fyrir aðalfund og skulu úrslit tilkynnt á aðalfundi.
  • Af sjö fulltrúum í stjórn skulu a.m.k. fimm og þar af formaður, varaformaður og gjaldkeri hafa fag- og stéttarfélagsaðild sbr. 3.1.
  • Um hæfi stjórnarmanna fer eftir efnisreglum hliðstæðum þeim sem eru í II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
  • Einfaldur meirihluti í rafrænni kosningu SÍ ræður kjöri.

Lög félagsins má sjá í heild sinn hér.

Á aðalfundi er einnig kosið í nefndir sem vinna mikilvægt starf hjá félaginu.

Nefndir félagsins eru:

  • Siðanefnd
  • Fagráð
  • Fræðslunefnd
  • Prófanefnd
  • Ritnefnd

Velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins til að fá nánari upplýsingar í tengslum við aðalfund félagsins.

Við hvetjum áhugasama félagsmenn að bjóða sig fram og taka þátt í starfi félagsins.

Léttar veitingar verða í boði í staðfundi.

Munið að skrá ykkur á fundinn

Ársreikningur 2021

Fjárhagsáætlun 2022 og uppgjör ársins 2021

2022 Skýrsla stjórnar

2022 Starfsáætlun stjórnar

Starfsreglur Fagdeildar sálfræðinga í heilsugæslu1

Framboð Helgi Hedinsson

Framboð Hugrún Vignisdóttir

Framboð Lilja Magnúsdóttir

Framboð Gyda Dogg Einarsdottir

Tengdar færslur