Read More »"/>

Baráttufundur opinberra starfsmanna – Kjarasamninga strax!

Heim / Tilkynningar / Baráttufundur opinberra starfsmanna – Kjarasamninga strax!

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar milli klukkan 17:00 og 18:00 í aðalsal Háskólabíós.

Streymt verður frá fundinum beint á fundi aðildarfélaga BHM og BSRB í Hofi á Akureyri og á fundum víðar um land (nánar auglýst síðar).

Kjarasamningar þorra opinberra starfsmanna hafa verið lausir frá 1. apríl 2019 og hafa viðræður við ríki og sveitarfélög gengið afar hægt. Þolinmæði félagsmanna og samninganefnda er löngu þrotin og kominn tími á að efla samstöðuna og undirbúa aðgerðir.

Á baráttufundinum í Háskólabíói munu eftirtalin flytja stutt ávörp:

  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM.
  • Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
  • Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
  • Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis.

Milli ávarpa munu Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar og Reykjavíkurdætur taka nokkur lög.

Tengdar færslur