Á námskeiðinu verður farið yfir samnorrænar siðareglur sálfræðinga, hlutverk siðanefndar og vinnureglur. Fjallað verður um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna. Siðfræðileg álitamál í störfum sálfræðinga verða rædd út frá dæmum. Nánari dagskrá verður send út síðar.
Námskeiðið fer fram í Borgartúni 6, sal BHM á 4. hæð.
Námskeiðsgjald er 35.000 kr. innifalið í námskeiðsgjaldi er kaffihressing á námskeiðsdögum sem og hádegisverður á fimmtudegi.
Minni félagsmenn á að hægt er að nýta styrki úr sjóðum BHM fyrir námskeiðsgjaldi.
Skráning fer fram í gegnum hlekk sem sendur hefur verið til félagsmanna eða með því að hafa samband við skrifstofu félagsins.