Read More »"/>

Vinnutími háskólafólks og skrifstofufólks samræmdur á almennum vinnumarkaði

Heim / Fréttir / Vinnutími háskólafólks og skrifstofufólks samræmdur á almennum vinnumarkaði

Vinnutími háskólafólks og skrifstofufólks samræmdur á almennum vinnumarkaði

Þann 7. janúar sl. var skrifað undir samkomulag sem felur í sér breytingar á kjarasamningi SA og og nokkurra aðildarfélaga BHM. Með þessari breytingu eru vinnutímaákvæði kjarasamningsins aðlöguð að vinnutímaákvæðum kjarasamninga skrifstofufólks á almennum vinnumarkaði en í framkvæmd hefur dagvinnutími víða verið samræmdur milli þeirra starfsmanna sem starfa eftir kjarasamningi þessum og þeirra sem starfa eftir kjarasamningum skrifstofufólks.

Með þessu hefur dagvinnutími verið samræmdur milli þeirra starfsmanna sem starfa eftir kjarasamningi þessum og þeirra sem starfa eftir kjarasamningum skrifstofufólks.

Vinnutímastytting kemur einungis til framkvæmda þar sem virkur vinnutími (sá tími sem starfsmaður er við störf) er lengri en 35,5 stundir að jafnaði á viku. Neysluhlé og önnur hlé frá vinnu vegna ýmiss konar persónulegra erinda teljast ekki til virks vinnutíma í þessu sambandi. Vinnutímastyttingin á að koma til framkvæmda, þar sem við á, eigi síðar en 1. mars nk.

Margir stjórnendur og sérfræðingar hafa alla jafna töluvert svigrúm til að skipuleggja vinnutíma sinn og eru fyrst og fremst ráðnir til að sinna tilteknum verkefnum og fá fyrir það föst mánaðarlaun. Yfirvinna er oft innifalin í mánaðarlaunum og/eða vinnutími sveigjanlegur. Rétt er að samtal eigi sér stað þar sem svo háttar til um bætta nýtingu vinnutíma gegn styttri viðveru svo samræma megi betur atvinnu- og fjölskyldulíf.

Eftirtalin sátu í viðræðunefnd félaganna:

  • Maríanna H. Helgadóttir, formaður
  • Guðfinnur Þór Newman, varaformaður
  • Júlíana Guðmundsdóttir, lögfræðingur

Með nefndinni starfaði hagfræðingur BHM, Vilhjálmur Hilmarsson.

Hægt er að kynna sér samkomulagið hér.

Aðildarfélög innan BHM sem eiga aðild að þessum samningi eru:

  • Dýralæknafélag Íslands
  • Félag íslenskra félagsvísindamanna
  • Félags íslenskra náttúrufræðinga
  • Félag lífeindafræðinga
  • Félag sjúkraþjálfara
  • Félagsráðgjafafélag Íslands
  • Fræðagarður
  • Iðjuþjálfafélag Íslands
  • Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
  • Ljósmæðrafélag Íslands
  • Sálfræðingafélag Íslands
  • Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga
  • Stéttarfélag lögfræðinga
  • Þroskaþjálfafélag Íslands
Tengdar færslur