Read More »"/>

Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands um sálfræðiþjónustu uppfærður

Heim / Fréttir / Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands um sálfræðiþjónustu uppfærður

Rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands um sálfræðiþjónustu hefur verið uppfærður og gerðar voru nokkrar breytingar samhliða.

Áfram munu Sjúkratryggingar kaupa þjónustu sálfræðinga fyrir börn með alvarlega geð-, hegðunar- og þroskaraskanir. Til viðbótar munu heilsugæslustöðvar geta sent tilvísanir  fyrir fullorðna og börn vegna gruns eða staðfestrar greiningar um kvíðaröskun og/eða þunglyndis af einhverjum toga (væga til meðal).

Samninginn í heild sinni má finna með því að þrýsta hér og ef sálfræðingar hafa áhuga á að skrá sig á samninginn má finna eyðublað um það hér.

Sálfræðingafélagið hefur ekki farið ýtarlega yfir samninginn og verða upplýsingar um samninginn uppfærðar eftir þörfum.

Hvetjum við félagsmenn sem hafa áhuga á að fara á samning til að kynna sér öll skilyrði hans vel og vandlega.

Tengdar færslur