Félag sálfræðinga á Norður- og Austurlandi (FSNA)

Félag sálfræðinga á Norður- og Austurlandi (FSNA) var stofnað á Akureyri þann 18. janúar 2013. Hlutverk félagsins er fjórþætt: Að standa vörð um hagsmuni sálfræðinga á Norður- og Austurlandi (t.d. aðgengi að símenntun); að stuðla að því að félagsmenn uppfylli fyllstu kröfur að því er varðar menntun og siðgæði í starfi; að stuðla að hagnýtingu sálfræðilegrar þekkingar og koma sálfræðilegri þekkingu á framfæri; að stuðla að samstarfi og samheldni milli félagsmanna. Félagssvæðið nær frá Hrútafirði í vestri að Djúpavogi í austri. Fjöldi félagsmanna hefur haldist í kringum 30 manns frá stofnun félagsins.

Félagið hefur staðið fyrir samverustundum félagsmanna, fræðsluviðburðum og ráðstefnu í samstarfi við Háskólann á Akureyri.

Stjórn félags sálfræðinga á Norður- og Austurlandi skipa:

Karen Júlía Sigurðardóttir, formaður

Aðalheiður Sigfúsdóttir, gjaldkeri
Valdís Eyja Pálsdóttir, ritari
Jóhanna Bergsdóttir. varamaður

Netfang: fnaust@gmail.com