Read More »"/>

Áunnin réttindi félagsmanna verði virt

Heim / Fréttir / Áunnin réttindi félagsmanna verði virt

Húsfyllir á baráttufundi ellefu aðildarfélaga BHM, 20. nóvember 2019

Á sameiginlegum baráttufundi ellefu aðildarfélaga BHM var samþykkt ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst við kröfur samninganefnda félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið. Viðsemjendur eru hvattir til að virða áunnin réttindi félagsmanna og þess er krafist að í yfirstandandi kjaraviðræðum verði raunveruleg skref tekin til styttingar vinnuvikunnar, án þess að kjör og réttindi verði skert.

Húsfyllir var á fundinum en þar fóru forsvarsmenn félaganna yfir stöðuna í viðræðunum við ríkið og kynntu helstu sjónarmið og áherslur. Kjarasamningar félaganna við ríki og sveitarfélög hafa nú verið lausir í tæplega átta mánuði eða frá 1. apríl síðast liðnum og hafa viðræður enn sem komið er litlum árangri skilað.

Félögin ellefu eru: Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag lífeindafræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands.

Ályktun fundarins sem samþykkt var einróma, er eftirfarandi:

Sameiginlegur kjarafundur félagsmanna 11 aðildarfélaga BHM haldinn 20. nóvember 2019 lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur og áherslur samninganefnda félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið og harmar þann seinagang sem er í viðræðunum. Fundurinn hafnar kjararýrnun og hvetur viðsemjendur til að virða áunnin réttindi félagsmanna. Krafist er 500 þúsund króna lágmarkslauna fyrir háskólamenntaða. Óhóflegt álag á starfsfólk innan almannaþjónustu á vegum hins opinbera er viðvarandi og þekkt að slíkt er heilsuspillandi. Fundurinn krefst þess að viðsemjendur taki raunveruleg skref til styttingar vinnuvikunnar án þess að skerða kjör og réttindi. 

Tengdar færslur