Read More »"/>

8848 ástæður til þess að gefast upp

Heim / Fréttir / 8848 ástæður til þess að gefast upp

BHM býður félagsmönnum aðildarfélaga sinna upp á hvetjandi fyrirlestur með Vilborgu Örnu Gissurardóttur í streymi. Nú er um að gera að að halda í jákvæðnina og horfa fram á við þrátt fyrir Covid-19, samkomubann og sóttkví.

Vilborg Arna ætlar að flytja fyrirlesturinn „8848 ástæður til þess að gefast upp“ í streymi á netinu frá sal BHM í Borgartúninu kl. 09:30 þriðjudaginn 17. mars 2020.

Fyrirlesturinn fjallar um ferðalag í átt að markmiði sem reyndist síður en svo auðvelt að ná. Sagan er persónuleg og fjallar um hvernig er hægt að yfirstíga hindranir, halda út í erfiðum aðstæðum, sorgir sem og sigra. Sagan á erindi við alla sem þurfa að takast á við áskoranir, mótlæti eða vilja bæta árangur sinn.

Athugið að vegna Covid-19 faraldursins verður ekki hægt að koma og hlýða á fyrirlesturinn. Hann verður aðeins í streymi á streymissíðu BHM .

Smelltu hér til að skrá þig á viðburðinn.  

Tengdar færslur