Ellefu aðildarfélög BHM hafa sent frá sér svohljóðandi yfirlýsingu:

Í vikunni biðluðu landlæknir, sóttvarnalæknir og almannavarnir til heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem starfa við viðbúnað vegna kórónaveirunnar (COVID-19) að fresta utanlandsferðum eftir því sem kostur er. Þessum tilmælum er m.a. beint til margra félagsmanna eftirtalinna ellefu aðildarfélaga BHM sem starfa innan heilbrigðiskerfisins og á öðrum mikilvægum stofnunum ríkisins.

Að mati félaganna sýna tilmælin glögglega hve mikilvægir umræddir starfsmenn eru íslensku samfélagi. Það skýtur því skökku við að nú er næstum liðið heilt ár frá því að kjarasamningar félaganna við ríkið losnuðu og enn hafa viðræður um nýja samninga engum árangri skilað. Ganga verður til samninga við félögin án tafar og aflétta þannig því viðbótarálagi á starfsfólk sem óhjákvæmilega fylgir því að vera án kjarasamninga í tæpt ár.

Félögin ellefu furða sig á því hve lítinn samningsvilja ríkisvaldið hefur sýnt í viðræðunum til þessa. Þau krefjast þess að fá raunverulegt samtal við viðsemjendur, að hlustað verði á sjónarmið félaganna og komið til móts við kröfur þeirra.

BHM-félögin ellefu eru:

Dýralæknafélag Íslands
Félag geislafræðinga
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Félag lífeindafræðinga
Félagsráðgjafafélag Íslands
Iðjuþjálfafélag Íslands
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
Ljósmæðrafélag Íslands
Sálfræðingafélag Ísland
Þroskaþjálfafélag Íslands