Read More »"/>

Siðareglunámskeið siðanefndar Sálfræðingafélags Íslands

Heim / Viðburður / Siðareglunámskeið siðanefndar Sálfræðingafélags Íslands
Upphafsdagsetning: 17. febrúar, 2022
Endar dags: 18. febrúar, 2022
Tími: 00:00 - 00:00
Staðsetning: Borgartúni 6, BHM 4. hæð

Siðareglunámskeið siðanefndar Sálfræðingafélags Íslands fer fram dagana 17. febrúar og 18. febrúar 2022 (fyrri daginn frá kl. 9:00 til 16:00 og seinni daginn frá kl. 9:00 til 12:00).

Á námskeiðinu verður farið yfir samnorrænar siðareglur sálfræðinga, hlutverk siðanefndar og vinnureglur. Fjallað verður um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna.  Siðfræðileg álitamál í störfum sálfræðinga rædd út frá dæmum.  Nánari dagskrá verður send út síðar.

Námskeiðið fer fram í Borgartúni 6, sal BHM á 4. hæð.
Námskeiðsgjald er 30.000 kr. og innifalið í því er kaffihressing á námskeiðsdögum sem og hádegisverður á fimmtudegi.
Minni félagsmenn á að hægt er að nýta styrki úr sjóðum BHM fyrir námskeiðsgjaldi.

Tengdar færslur