Siðareglunámskeið siðanefndar Sálfræðingafélags Íslands fer fram dagana 17. febrúar og 18. febrúar 2022 (fyrri daginn frá kl. 9:00 til 16:00 og seinni daginn frá kl. 9:00 til 12:00).
Á námskeiðinu verður farið yfir samnorrænar siðareglur sálfræðinga, hlutverk siðanefndar og vinnureglur. Fjallað verður um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna. Siðfræðileg álitamál í störfum sálfræðinga rædd út frá dæmum. Nánari dagskrá verður send út síðar.
Námskeiðið fer fram í Borgartúni 6, sal BHM á 4. hæð.
Námskeiðsgjald er 30.000 kr. og innifalið í því er kaffihressing á námskeiðsdögum sem og hádegisverður á fimmtudegi.
Minni félagsmenn á að hægt er að nýta styrki úr sjóðum BHM fyrir námskeiðsgjaldi.