Read More »"/>

Sálfræðiritið 2020 – óskað er eftir efni

Heim / Fréttir / Sálfræðiritið 2020 – óskað er eftir efni

Sálfræðiritið mun koma út á síðari hluta 2020 og verður það 25. árgangur ritsins.

Ritstjórnin fyrir þessa útgáfu er skipuð þeim Rannveigu S. Sigurvinsdóttur, Guðmundi Skarphéðinssyni og Sigurði Viðar.

Áhugsamir félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við meðlimi ritnefndar sem fyrst hafi þeir efni í huga.
Við höfum lengt frestinn til þess að skila inn handriti til 1. júní.

Ritið birtir greinar á íslensku sem tengjast sálfræði. Höfundar geta haft eftirfarandi flokka í huga:

*Rannsóknargreinar: Ritrýndar greinar þar sem fjallað er um niðurstöður rannsókna sem hafa íslenska skírskotun.

*Sálfræði í samfélagi: Ritrýndar greinar sem eru fræðandi um sálfræði fyrir íslenskt samfélag og samfélag sálfræðinga á Íslandi. Greinarnar geta m.a. fjallað um stefnumótun hér á landi með hliðsjón af kenningum eða gögnum, eða verið samantektargreinar sem miðla upplýsingum á tilteknu sviði (t.d. taugasálfræði, félagssálfræði og meðferðarsálfræði).

*Stefnugreinar og ádrepur: Opið og óritrýnt efni (en ritstýrt) um það sem höfundar vilja vekja sérstaka athygli á.

Ritdómar um íslensk eða þýdd rit um sálfræðileg efni og meðferðarhandbækur

Með góðum kveðjum,
Rannveig S. Sigurvinsdóttir, rannveigs@ru.is
Guðmundur skarphéðinsson, gskarp@hi.is
Sigurður Viðar, sigurdur@kms.is

Tengdar færslur