Sálfræðingar starfandi hjá ríkinu hafa samþykkt kjarasamning Sálfræðingafélags Íslands við ríkið. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til og með 31. mars 2028.
315 sálfræðingar voru á kjörskrá og 217 greiddu atkvæði. Af þeim sem greiddu atkvæði sögðu 182 (83,9%) já, Nei sögðu 35 (16,1%).
Samningurinn tekur gildi strax og laun verða því greidd út samkvæmt honum um næstu mánaðamót (1. júlí). Að sama skapi koma afturvirkar launahækkanir vegna launatöflubreytinga einnig til útborgunar þá.
Related Posts