Orlofsuppbót 2025
Reykjavíkurborg
Orlofsuppbót félagsmanna Sálfræðingafélagsins er starfa hjá Reykjavíkurborg er 60.000 kr. árið 2025, miðast við fullt starf og skal greiða þann 1. júní.
Uppbótin greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma öllum stafsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi í að minnsta kosti 13 vikur samfellt á orlofsárinu.
Önnur sveitarfélög
Orlofsuppbót félagsmanna SÍ er starfa hjá sveitarfélögum landsins er 59.500 kr. og miðast við fullt starf og skal greiða þann 1. maí.
Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag, þ.e. á orlofsárinu (1. maí – 30. apríl).
Ríkið
Þar sem enn er ósamið við ríkið miðast orlofsuppbót við samning frá 2023 og er upphæðin 56.000 kr. Orlofsuppbót miðast við fullt starf og skal greiða þann 1. júní.
Þegar samningar nást verður gerð leiðrétting á orlofsuppbót og desemberuppbót samhliða leiðréttingu á launum.
Heimilt er að greiða orlofsuppbót sem önnur aðildarfélög BHM sem hafa samið um við ríkið og er upphæðin 60.000 kr. fyrir árið 2025.
Uppbótin greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma öllum stafsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi í að minnsta kosti 13 vikur samfellt á orlofsárinu.