Málþing BHM um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks

Fimmtudaginn 30. janúar 2020 á Grand hótel Reykjavík

BHM efnir til málþings um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks fimmtudaginn 30. janúar nk. á Grand hótel Reykjavík. Yfirskrift málþingsins er „Lífið í harkinu – sjálfstætt starfandi háskólafólk í breyttum heimi“. Það er opið öllum sem áhuga hafa, án endurgjalds og meðan húsrúm leyfir, en skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM.

Í Evrópu og víðar færist í vöxt að háskólamenntað fólk sé sjálfstætt starfandi eða sé bæði í föstum störfum og vinni sem verktakar. Þróunin helst í hendur við breytingar á vinnumarkaði sem kenndar hafa verið við harkhagkerfið (e. gig economy). Í stuttu máli felast þessar breytingar í því að fyrirtæki og stofnanir velja fremur að útvista verkefnum en ráða fasta starfsmenn til að sinna þeim. Ný tækni hefur auðveldað útvistun en hún fer í auknum mæli fram gegnum svokallaða netvanga (e. digital platforms) sem eru sérhæfðar vefsíður sem tengja saman kaupendur og seljendur þjónustu. Breytingarnar hafa áhrif á fólk í ýmsum faggreinum og starfsstéttum, bæði háskólamenntað fólk og fólk með minni menntun.

Víðast hvar er þó ráðningarsamband enn grundvöllur vinnumarkaðstengdra réttinda sem ýmist eru bundin í lögum eða kjarasamningum. Þessi réttindi ná yfirleitt ekki nema að mjög takmörkuðu leyti til fólks sem er sjálfstætt starfandi. Í nágrannalöndunum hafa stéttarfélög lýst áhyggjum af stöðu fólks sem vinnur í harkhagkerfinu og gripið til ráðstafana til að bæta réttindi þess.

En hver er staðan hér á landi?
Fer sjálfstætt starfandi háskólafólki fjölgandi eða fækkandi?
Hvaða breytingar þarf að gera á lögum og reglum til að bæta stöðu þessa hóps?
Hvernig geta stéttarfélög háskólafólks bætt þjónustu sína við sjálfstætt starfandi félagsmenn?

Þetta eru meðal spurninga sem ræddar verða á málþingi BHM um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks fimmtudaginn 30. janúar nk. á Grand hótel Reykjavík. Yfirskrift málþingsins er „Lífið í harkinu – sjálfstætt starfandi háskólafólk í breyttum heimi“ og þar munu bæði innlendir og erlendir sérfræðingar ræða stöðuna og leitast við að spá í framtíðina.