Sálfræðingafélag íslands er fag- og stéttarfélag sálfræðinga á Íslandi og hefur eftirfarandi hlutverk samkvæmt lögum félagsins:
- Að semja um fagleg hagsmunamál félagsmanna.
- Að semja um kaup og kjör félagsmanna.
- Að standa vörð um réttindi félagsmanna.
- Að stuðla að því að þeir sem fást við sálfræðileg störf uppfylli fyllstu kröfur að því er varðar menntun og siðgæði í starfi.
- Að stuðla að aukinni hagnýtingu sálfræðilegrar þekkingar og koma sálfræðilegum viðhorfum á framfæri.
- Að stuðla að samstarfi og samheldni milli félagsmanna.
- Að stuðla að tengslum við nema í sálfræði.
- Að eiga samstarf við önnur stéttarfélög.
- Að vera í samvinnu við félög sálfræðinga í öðrum löndum.
Skrifstofa Sálfræðingafélags Íslands er í Borgartúni 6, á 3. hæð, þar sem BHM og mörg aðildarfélaga bandalagsins eru með skrifstofur sínar. Á skrifstofunni starfar framkvæmdastjóri félagsins. Hægt er að ná í hann á venjulegum skrifstofutíma en þar sem hann er eini starfsmaðurinn getur verið skynsamlegt að hringja á undan sér.
Sálfræðingafélag Íslands var stofnað árið 1954. Árið 1993 var Stéttarfélag sálfræðinga á Íslandi stofnað og eftir það hafði Sálfræðingafélag Íslands hlutverk fagfélags sálfræðinga. Félögin voru sameinuð undir nafni Sálfræðingafélags Íslands árið 2005.
Fjöldi félagsmanna í SÍ hefur aukist jafnt og þétt. Í október 2018 voru félagar í SÍ 656 talsins og þar af höfðu 426 fulla aðild, 88 fagaðild, 119 höfðu aukaaðild að félaginu og heiðursfélagar og félagar með lífeyrisaðild voru 23. Konur eru í miklum meirihluta eða 491 talsins og karlmennirnir í minnihluta eða 165 talsins.
Félagið er stéttarfélag sálfræðinga og gerir kjarasamninga fyrir hönd sálfræðinga. Ráðgjöf til félagsmanna varðandi framkvæmd kjarasamninga er á skrifstofu félagsins. Trúnaðarmenn félagsins funda reglulega til að tryggja samfellu og tengsl skrifstofunnar og vinnustaða sálfræðinga. Í faglegu starfi félagsins eru fastir liðir áberandi. Þar má nefna árlegt Sálfræðiþing sem haldið er á vordögum, árlegan haustfund sálfræðinga og reglulega morgunverðarfundi félagsins.