Read More »"/>

Námskeið í tengslum við Sálfræðiþing, Klínísk spálíkön – Hagnýtt námskeið á mannamáli í R.

Home / Viðburður / Námskeið í tengslum við Sálfræðiþing, Klínísk spálíkön – Hagnýtt námskeið á mannamáli í R.
Dags.: 11. apríl, 2019
Tími: 00:00 - 00:00

Í tilefni af Sálfræðiþingi 2019 ætlar Tölfræðiráðgjöfin að bjóða upp á hálfs dags námskeið í klínískum spálíkönum. Í þessu námskeiði fá gestir að kynnast hinum ýmsu forspárlíkönum sem nýtast almennt í heilbrigðis- og lýðheilsuvísindum. Dæmi fást um almenn línuleg líkön með normaldreifðar leifar, tvíkosta áhættureikna, lifunarlíkön fyrir tíma að atburði og Poisson líkön til að spá fyrir um talningargögn, auk aðferða til að prófa og staðfesta forspárgetu þeirra á mannamáli.

Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 11. april klukkan 09:00 – 12:00 og verður staðsetning auglýst síðar. Skráning fer fram í tölvupóstfanginu trhvs@hi.is. Vinstamlegast notið fyrirsögnina “Klínísk spálíkön: Skráning”. Námskeiðið verður kennt á ensku ef þess er þörf.

Kennari er Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Miðstöð í Lýðheilsuvísindum, og aðstoðarkennarar Brynjólfur Gauti Jónsson og Þórarinn Jónmundsson, meistaranemar í tölfræði við Háskóla Íslands.

Sjá nánar hér: https://trhvs.hi.is/oflokkad/klinisk-spalikon-namskeid-11-april/

Related Posts