Read More »"/>

Áskorun til yfirvalda vegna netsölu áfengis

Heim / Fréttir / Áskorun til yfirvalda vegna netsölu áfengis

Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Bréf sent til Alþingismanna, ráðherra og fjölmiðla 26. ágúst 2024.

Sálfræðingafélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Félag sjúkraþjálfara, Ljósmæðrafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum:

  • Taka undir orð heilbrigðisráðherra um þá yfirstandandi ógn sem nú steðjar að grundvallarmarkmiðum lýðheilsu vegna meintrar ólöglegrar netsölu áfengis, sem fram komu í opinberu bréfi ráðherra þann 5. júní sl.
  • Í tilefni þess að rótgróin íslensk verslanakeðja, Hagkaup, áætlar að hefja áfengissölu til neytenda á næstu dögum skora félögin á yfirvöld að kveða strax upp úr um hvort slík sala sé lögleg. Yfirvöld geta ekki horft aðgerðarlaus á þá lýðheilsuógn sem nú steðjar að vegna stóraukinnar netsölu áfengis á Íslandi.
  • Í samþykktri stefnu Alþingis um lýðheilsustefnu til ársins 2030 segir að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun. Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.
  • Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um um einkasölu ÁTVR á áfengi.
Tengdar færslur