Deprecated: Non-canonical cast (double) is deprecated, use the (float) cast instead in /home/salis/public_html/wp-content/plugins/wordfence/vendor/wordfence/wf-waf/src/lib/xmlrpc.php on line 216

Deprecated: Non-canonical cast (boolean) is deprecated, use the (bool) cast instead in /home/salis/public_html/wp-content/plugins/wordfence/vendor/wordfence/wf-waf/src/lib/xmlrpc.php on line 235

Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /home/salis/public_html/wp-content/plugins/wordfence/vendor/wordfence/wf-waf/src/init.php:21) in /home/salis/public_html/wp-includes/feed-rss2.php on line 8
sal.is https://sal.is Sálfræðingafélag Íslands Thu, 09 Jul 2026 14:46:06 +0000 is hourly 1 https://wordpress.org/?v=7.0.9 https://sal.is/wp-content/uploads/2020/11/fav.png sal.is https://sal.is 32 32 Sumarlokun skrifstofu SÍ https://sal.is/sumarlokun-skrifstofu-si/ Thu, 09 Jul 2026 14:41:58 +0000 https://sal.is/?p=26336 Skrifstofa Sálfræðingafélags Íslands verður lokuð vegna sumarleyfa frá 10. júlí til og með 5. ágúst.

]]>
https://sal.is/26297-2/ Wed, 29 Apr 2026 13:15:45 +0000 https://sal.is/?p=26297 Gögn fyrir aðalfund félagsins 2026

Fundargögn vegna aðalfundar 20226

 

Skýrsla siðanefndar 2026

Skýrsla prófanefndar 2026

SkyrslaFraedslunefndar.25_26

Fagdeild sálfræðinga við skóla 2025_aðalfundur SÍ

]]>
Aðalfundur Sálfræðingafélags Íslands 2026 https://sal.is/adalfundur-salfraedingafelags-islands-2026/ Mon, 27 Apr 2026 08:34:41 +0000 https://sal.is/?p=26289 Read More »]]> Aðalfundur Sálfræðingafélags Íslands fer fram miðvikudaginn 29. apríl að Borgartúni 27, 2. hæð. Auglýstur fundartími er 17:00 – 19:00. Atkvæðisrétt á fundinum hafa þau sem hafa fag- og stéttarfélagsaðild eða fagfélagsaðild að félaginu í samræmí við 3. gr. laga Sálfræðingafélags Íslands.

Skráning á fundinn er hér

Dagskrá fundar er í samræmi við lög félagsins.

Að fundi loknum verða veitingar í boði félagsins.

]]>
Nýr framkvæmdastjóri Sálfræðingafélags Íslands https://sal.is/nyr-framkvaemdastjori-salfraedingafelags-islands/ Wed, 04 Feb 2026 13:29:03 +0000 https://sal.is/?p=26282 Read More »]]> Agnes Björg

Agnes Björg Tryggvadóttir

 

Nýr framkvæmdastjóri Sálfræðingafélags Íslands kom til starfa nú í byrjun febrúar.

Agnes Björg Tryggvadóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og hefur leitt uppbyggingu áfallateymis LSH frá upphafi og þar til nú. Áður en hún hóf störf á Landspítala starfaði hún m.a. í skólaþjónustu þannig að hún hefur fjölbreytta reynslu af störfum og starfsumhverfi sálfræðinga og m.a. verið trúnaðarmaður á tveimur vinnustöðum. Þá er Agnes alls ekki ókunn starfsemi Sálfræðingafélagsins því hún sat í stjórn félagsins á árunum 2019-2023.

Stjórn Sálfræðingafélags Íslands býður Agnesi hjartanlega velkomna til starfa!

 

]]>
Gleðilega hátíð kæra félagsfólk og landsmenn allir https://sal.is/25926-2/ Fri, 19 Dec 2025 08:43:42 +0000 https://sal.is/?p=25926 Sálfræðingafélag Íslands

óskar félagsfólki og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökkum fyrir samstarfið.

 

]]>
Desemberuppbót 2025 https://sal.is/desemberuppbot-2025/ Wed, 26 Nov 2025 13:11:10 +0000 https://sal.is/?p=25913 Read More »]]> Desemberuppbót fyrir árið 2025 skal greidd 1. desember og miðast við fullt starf á tímabilinu 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót  er föst krónutala og tekur ekki breytingum samkvæmt öðrum ákvæðum kjarasamnings. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Hvetjum félagsfólk til að fylgjast með að desemberuppbót sé rétt greidd út miðað við kjarasamning.

 

Desemberuppbót árið 2025

Ríkið: 110.000 kr.

Reykjavíkurborg: 123.000 kr.

Samband íslenskra sveitarfélaga (önnur sveitarf. en Reykjavíkurborg): 140.000 kr.

Samtök atvinnulífsins (aðalkjarasamningur SA): 110.000 kr.  Greiðist eigi síðar en 15. desember.

]]>
Sálfræðingafélag Íslands óskar eftir að ráða drífandi og framsýnan framkvæmdastjóra til starfa https://sal.is/salfraedingafelag-salfraedingafelag-islands-oskar-eftir-ad-rada-drifandi-og-framsynan-framkvaemdastjora-til-starfa/ Fri, 10 Oct 2025 11:14:27 +0000 https://sal.is/?p=25806 Read More »]]> Sálfræðingafélag Íslands óskar eftir að ráða drífandi og framsýnan framkvæmdastjóra til starfa. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði og sjálfstæði og mun framkvæmdastjóri starfa náið með stjórn, fagdeildum og nefndum félagsins. Félagið er ört vaxandi fag- og stéttarfélag sálfræðinga og varða verkefni framkvæmdastjóra bæði fagleg málefni sem og kjara- og réttindamál sálfræðinga.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á starfsemi og daglegum rekstri félagsins
  • Samskipti, ráðgjöf og samstarf við félagsmenn og aðila utan félagsins
  • Stjórnun og umsjón með verkefnum, svo sem ráðstefnum og fundarhöldum
  • Undirbúningur og gerð kjarasamninga
  • Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim
  • Ábyrgð á framkvæmd ákvarðana stjórnar
  • Önnur verkefni í samráði við stjórn

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Meistaragráða í sálfræði, löggilt starfsleyfi er kostur
  • Reynsla af stjórnun og rekstri félagasamtaka
  • Þekking á kjaramálum og kjarasamningagerð
  • Brennandi áhugi á sálfræði og hagsmunamálum sálfræðinga
  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
  • Mjög góð tölvukunnátta

 

Um Sálfræðingafélag Íslands:

Sálfræðingafélag Íslands er fag- og stéttarfélag sálfræðinga á Íslandi sem vinnur að því að efla fagmennsku, standa vörð um hagsmuni félagsmanna og stuðla að framþróun sálfræðinnar sem starfs- og vísindagreinar. Félagsmenn eru rúmlega 800 talsins og fer ört fjölgandi. Sálfræðingafélag Íslands er aðildarfélag innan Bandalags háskólamanna (BHM) og á í miklu samstarfi við bandalagið sem og önnur aðildarfélög þess.

 

Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allir áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511-1225.

]]>
Niðurgreiðsla sál­fræði­þjónustu verði tryggð https://sal.is/nidurgreidsla-salfraedithjonustu-verdi-tryggd/ Thu, 14 Aug 2025 09:38:37 +0000 https://sal.is/?p=25723 Read More »]]>
Frábærar fréttir en Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í viðtali á Vísi að niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu verði tryggð á kjörtímabilinu.
Fram kemur í viðtalinu á Vísi að:
Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu verður tryggð á kjörtímabilinu að sögn fjármálaráðherra. Verð fyrir sálfræðiþjónustu fer hækkandi og áætlað er að kostnaður ríkisins geti numið um þremur milljörðum á ári.
Þegar Viðreisn var í stjórnarandstöðu árið 2020 náði flokkurinn í gegn frumvarpi til laga sem veitir stjórnvöldum heimild til þess að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Nú fimm árum síðar hefur það hins vegar enn ekki verið gert. Niðurgreiðslan var meðal kosningaloforða Viðreisnar en í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar er þó ekki sérstaklega minnst á það – heldur einungis rætt um aukið aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu.
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir að hún verði tryggð. „Það er alveg klárt mál að við munum ljúka því á kjörtímabilinu,“ segir Daði og bætir við að undirbúningsvinna sé langt komin. „Það mun finnast fjármagn til þess að loka þessu.“
Sjá viðtalið í heild sinni hér.
]]>
Lokun skrifstofu vegna sumarleyfa https://sal.is/lokun-skrifstofu-vegna-sumarleyfa/ Thu, 10 Jul 2025 08:00:56 +0000 https://sal.is/?p=25716 Skrifstofa Sálfræðingafélags er lokuð vegna sumarleyfa og opnar aftur mánudaginn 11. ágúst.

Ef erindið er mjög áríðandi er hægt að hafa samband við formann félagsins Pétur Maack Þorsteinsson í síma 894-5894 eða framkvæmdastjóra félagsins Önnu Maríu Frímannsdóttur í síma 659-2636

Með ósk um gleðilegt sumar

]]>
Formaður SÍ tók þátt í pallborðsumræðum á Evrópuráðstefnu um sálfræði https://sal.is/formadur-si-tok-thatt-i-pallbordsumraedum-a-evropuradstefnu-um-salfraedi/ Thu, 03 Jul 2025 07:41:40 +0000 https://sal.is/?p=25708 Formaður og framkvæmdastjóri SÍ sátu aðalfund EFPA (Evrópusamtaka sálfræðingafélaga) síðastliðinn þriðjudag og í taka svo í framhaldi þátt í Evrópuráðstefnu ECP.  Á ráðstefnunni í dag fóru fram pallborðsumræður með formönnum norrænu sálfræðingafélagana með yfirskriftinni – How do we promote psycholgy dealing with societal challanges more efficiently?

]]>