Read More »"/>

Nýr framkvæmdastjóri Sálfræðingafélags Íslands

Home / Fréttir / Nýr framkvæmdastjóri Sálfræðingafélags Íslands

Agnes Björg

Agnes Björg Tryggvadóttir

 

Nýr framkvæmdastjóri Sálfræðingafélags Íslands kom til starfa nú í byrjun febrúar.

Agnes Björg Tryggvadóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og hefur leitt uppbyggingu áfallateymis LSH frá upphafi og þar til nú. Áður en hún hóf störf á Landspítala starfaði hún m.a. í skólaþjónustu þannig að hún hefur fjölbreytta reynslu af störfum og starfsumhverfi sálfræðinga og m.a. verið trúnaðarmaður á tveimur vinnustöðum. Þá er Agnes alls ekki ókunn starfsemi Sálfræðingafélagsins því hún sat í stjórn félagsins á árunum 2019-2023.

Stjórn Sálfræðingafélags Íslands býður Agnesi hjartanlega velkomna til starfa!

 

Related Posts